Kynningarfundur vegna breytinga á vaktavinnu

MATVÍS og Félag viðurkenndra bókara standa mánudaginn 6. maí sameiginlega fyrir fræðslu um nýtt vaktakerfi sem samið var um í kjarasamningi MATVÍS og SA. Samningurinn felur í sér miklar breytingar hjá þeim sem vinna vaktavinnu.

Fundurinn stendur yfir frá klukkan 12:00 – 12:45 á Stórhöfða 29-31. Gengið er inn Grafarvogsmegin við húsið.

Hádegisverður verður er í boði fyrir þá sem mæta á staðinn. Einnig er hægt að skrá sig á fjarfund en þeir sem það gera fá sendan hlekk í tölvupósti.

Mikilvægt er að fólk skrái sig á fundinn, hvort heldur sem það mætir á staðinn eða sækir kynninguna á fjarfundi.

Skráning á fund

"*" indicates required fields

Nafn*
Tölvupóstfang*
Mætir þú á staðinn eða vilt þú tengjst fjarfundi*