![Fagfélögin bjóða í kaffi 1. maí](https://matvis.is/wp-content/uploads/2024/03/hus-fagfelaganna-scaled.jpg)
Fagfélögin bjóða félagsfólki í kaffi þann 1. maí næstkomandi, líkt og undanfarin ár. Kaffið hefst að kröfugöngu lokinni klukkan 14:00 að Stórhöfða 29-31. Gengið er inn í húsið Grafarvogsmegin.
Fagélögin óska vinnandi stéttum til hamingju með baráttudag verkalýðsins, 1. maí og vona að sem flestir sjái sér fært að taka þátt í hátíðahöldunum.
Slagorð dagsins að þessu sinni er Sterk hreyfing – sterkt samfélag.
![](https://matvis.is/wp-content/uploads/2024/04/1.maikaffi.2024.fb_-1024x1024.jpg)