Hlutabætur á móti skertu starfshlutfalli
o Skerðing á starfshlutfalli verður að byggja á samkomulagi á milli fyrirtækis og einstaklings þar sem fram kemur hver breyting á starfshlutfallinu er og til hvaða tímabils skerðingin nær.o Skerðing á starfshlutfalli þarf að vera a.m.k. 20 prósentustig.o Launamaður þarf að halda að lágmarki 25% starfi eftir skerðingu á starfshlutfalli.
o Hlutabætur greiðist í réttu hlutfalli við hið skerta starfshlutfall.
o Laun frá atvinnurekenda og atvinnuleysisbætur eru að hámarki 90% af launum fyrir skerðingu starfshlutfalls – þó að hámarki 700.000 kr.
o Hafi launmiðað við fullt starf fyrir skerðingu starfshlutfalls numið 400.000 kr. eða minna eru þau bætt að fullu.
o Hafi launmiðað við fullt starf fyrir skerðingu starfshlutfalls numið meira en 400.000 kr. skerðast laun frá atvinnurekenda og atvinnuleysisbætur ekki niður fyrir 400.000 kr.
o Samningar um skert starfshlutfall skerðir ekki rétt launafólks til tekjutengdra atvinnuleysisbóta missi það vinnuna síðar.
o Námsmenn eiga möguleika á hlutabótum uppfylli þeir skilyrði laganna.
o Réttindi launafólks í Ábyrgðasjóði launa eru tryggð komi til gjaldþrots fyrirtækis.
o Sjálfstætt starfandi eiga rétt skv. lögunum.
o Lögin gilda frá 15. mars til 1. júní 2020.
Nokkur atriði til áréttingar:
– Leiti fyrirtæki til starfsmanna sinna um að skerðing á starfshlutfalli með tilheyrandi lækkun launa komi til framkvæmda án uppsagnarfrests getur starfsmaður hafnað slíku og gert kröfu um að uppsagnarfresturinn sé virtur.
o Atvinnurekanda er óheimilt að krefjast vinnuframlags frá launamanni umfram það starfshlutfall sem samið er um.
o Réttur til greiðslu atvinnuleysisbóta vegna skerts starfshlutfalls gildir um allt launafólk s.s. námsmanna óháð réttindum bótarétti þeirra að öðru leyti.
Nánar á vef ASÍ
Reiknivél sem félagsmenn geta notað til að sjá hvernig hlutbætur koma út miðað við skert starfshlutfall.
Reiknivélin virkar þannig að fólk slær inn núverandi starfshlutfall og síðan inn skert starfshlutfall og mánaðarlaun, þá á fólk að geta séð hvernig laun frá atvinnurekenda og frá atvinnuleysistryggingarsjóði koma út í heildina. Rétt er að ítreka það að laun frá 400.000 kr. og niður munu ekki skerðast.