Fagfélögin skrifa undir kjarasamning

Fagfélögin, MATVÍS, VM og RSÍ, undirrituðu í dag nýjan langtímasamning við Samtök atvinnulífsins. Samningurinn er í öllum aðalatriðum sambærilegur við þann samning sem skrifað var undir á fimmtudag. Hann gildir frá 1. febrúar 2024 til 31. janúar 2028.

Samningurinn kveður á um 3,25% afturvirka launahækkun frá 1. febrúar síðastliðnum. Lágmarkshækkun launa er 23.750 krónur. Næstu þrjú ár verður árleg hækkun launa 3,5%. Til viðbótar getur komið til greiðslu kauptaxtaauka og framleiðniauka á samningstímanum.

Í samningnum er einnig kveðið á um hækkun orlofs- og desemberuppbóta og að lágmarksávinnsla orlofs verði 25 dagar. Loks er í samningnum kveðið á um breytingar á vaktaálagi og vinnutíma í vaktavinnu hjá MATVÍS auk þess sem lágmarkstaxtar sveina eru samræmdir.

Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Fagfélaganna, segir afar mikilvægt að tekist hafi að ná samningnum sem stuðla að stöðugleika en tryggi félagsfólki jafnframt kærkomnar kjarabætur. Þá hafi útspil ríkis og sveitarfélaga skipt sköpum á lokametrunum. „Háir vextir og mikil verðbólga hefur leikið íslensk heimili grátt að undanförnu. Þessum samningum er ætla að vinda ofan af þeirri þróun og ná fram stöðugleika næstu árin,“ segir hann.

Kynningarefni verður birt hér á vefnum á næstu dögum en samningurinn verður jafnframt  kynntur á fundum í komandi viku. Fundartímar verða auglýstir þegar nær dregur.

Aðkoma stjórnvalda

Stjórnvöld hafa boðað umfangsmiklar aðgerðir sem styðja eiga við markmið kjarasamninganna. Heildarumfang aðgerðanna er allt að 80 milljarðar króna á samningstímanum. „Í þeim er lögð sérstök áhersla á að stuðla að heilbrigðari húsnæðismarkaði og fjölskylduvænna samfélagi samhliða því að stuðla að lækkun verðbólgu og vaxta. Aðgerðirnar munu auka ráðstöfunartekjur fjölskyldna verulega á samningstímanum, eða um allt að 500 þúsund krónur á ári,“ segir í kynningu á vef Stjórnarráðsins.

Kjarasamningur VM og SA

Stöðugleika og velferðar samningurinn