Um tvöhundruð og fimmtíu manns sátu fyrsta kynningafund Fagfélaganna, sem fram fór á Grand hótel í Reykjavík í hádeginu í dag, þriðjudaginn 12. mars 2024. Um 150 manns voru í salnum en aðrir 100 fylgdust með á fjarfundi.
Á fundinum kynnti Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Fagfélaganna, samningana við Samtök atvinnulífsins en atkvæðagreiðsla hófst klukkan 12:30 í dag. Hún stendur yfir til klukkan 14:00 þriðjudaginn 19. mars. Hér má sjá glærurnar.
Að erindi loknu svaraði Kristján Þórður spurningum úr sal.