Vilt þú starfa fyrir MATVÍS?

Uppstillingarnefnd leitar að fólki sem hefur áhuga á að gegna trúnaðarstörfum fyrir MATVÍS. Innan félagsins starfar uppstillinganefnd sem hefur það hlutverk að stilla upp mönnum í stjórn og aðrar trúnaðarstöður félagsins.

Nefndin auglýsir eftir einstaklingum frá stærri og fjölmennari vinnustöðum til þess að gefa kost á sér til stjórnar og trúnaðrastarfa. Þeir sem hafa áhuga og eru tilbúnir til félagsstarfa hafa gott aðgengi að námskeiðum sem í boði eru fyrir þá sem gegna trúnaðarstörfum fyrir stéttarfélög sér að kostnaðarlausu.

Áhugasamir þurfa að láta vita af áhuga sínum fyrir 10. janúar 2021, en nefndin lýkur störfum í lok janúar. Tillögur skal senda í tölvupósti til Stefáns Einars Jónssonar, formanns uppstillingarnefndar, á netfangið lenaosk@mmedia.is.

Starfsreglur nefndarinnar

„Stjórn og trúnaðarráð MATVÍS skal kjósa þrjá menn í uppstillingarnefndnefnd til að gera tillögur um stjórn og önnur trúnaðarstörf félagsins. Í störfum sínum skal nefndin tryggja það að allar deildir innan félagsins eigi fulltrúa í stjórn og ráðum og kalla eftir óskum þeirra er gengt hafa trúnaðarstöðum um áframhaldandi störf fyrir félagið. Við endurnýjun í trúnaðarstöður skal nefndin vinna að því að leita eftir aðilum á stærri og fjölmennari vinnustöðum þar sem því verður viðkomið. Nefndin starfar í umboði stjórnar og trúnaðarráðs. Nefndin skal hafa lokið störfum fyrir lok janúarmánaðar og skulu tillögur liggja frammi á skrifstofu félagsins frá byrjun febrúarmánaðar og fram til aðalfundar.“