Við­ræður um verk­á­ætlun undir stjórn ríkis­sátta­semjara

Vikulegir fundir viðræðunefnda Fagfélaganna (MATVÍS, RSÍ og VM) með fulltrúum Samtaka atvinnulífsins um verkáætlun vegna komandi kjarasamninga hafa litlu sem engu skilað. Þetta kom fram á fundi samninganefndar Fagfélaganna sem fram fór í Húsi fagfélaganna á Stórhöfða 29-31 í gær.

Fram kom í máli Kristjáns Þórðar Snæbjarnarsonar, formanns RSÍ, að langlundargeð Fagfélaganna sé brostið. Kristján benti á að þeir fulltrúar sem Samtök atvinnulífsins hafa sent fyrir sína hönd hafa ekki haft umboð til að semja um þau atriði sem á borðinu eru.

Í dag hafa fagfélögin farið þess á leit að ríkissáttasemjari annist frekari fundahöld þar sem reynt verði til þrautar að ljúka vinnu við verkáætlun úr síðustu kjarasamningum sem geti þá einnig stuðlað að því að endurnýjun næstu kjarasamninga hefjist sem fyrst. Tími árangurslausra fundahalda um verkáætlun er liðinn.

Á fundinum fóru fram líflegar umræður um stöðu viðræðna og ljóst að fundahöld síðustu vikna hafa valdið vonbrigðum.

Benóný Harðarson, forstöðumaður kjarasviðs Fagfélaganna, kynnti samninganefndunum niðurstöður launakönnunar sem lögð var fyrir félagsfólk í vor og sumar. Hann sýndi meðal annars fram á að verðbólgan hafði í byrjun september étið upp þá 6,75% launahækkun sem samið var um í síðustu kjarasamningum.

Sérstaka athygli vakti hve samhljóma félagsfólk í þessum þremur félögum er um áherslur fyrir komandi kjaraviðræður. Launahækkanir, styttri vinnutími og fjölgun orlofsdaga voru þau atriði sem efst voru á blaði hjá öllum aðildarfélögum. Þessar niðurstöður gefa samninganefndunum Fagfélaganna skýrt og sterkt umboð inn í þær kjaraviðræður sem nú fara í hönd.