Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, segir skýrt að veitingastaðir eigi að loka dyrum sínum klukkan tíu og fólk eigi að vera farið út á þeim tíma. Hann vísar því á bug að lögreglan hafi haft í hótunum í garð eigenda veitingahúsa.
Þetta kemur fram í frétt á mbl.is en fjölmiðillinn fjallaði fyrr í vikunni um að óánægju gætti meðal rekstraraðila veitingastaða í miðborginni vegna mismunandi skilnings á því hve lengi staðirnir mættu hafa opið. Lögregla segir að allir eigi að vera farnir út klukkan 22 en í fréttinni segir að einhverjir veitingahúsaeigendur séu þeirrar skoðunar að fólk hafi klukkustund eftir klukkan tíu til að ljúka við veitingar og yfirgefa staðinn.
Víðir segir að lögreglan fari eftir reglugerð sem heilbrigðisráðherra gefi út. „Túlkun heilbrigðisráðuneytisins var mjög skýr, að með þessu ætti staðurinn að tæmast á þeim tíma sem tilgreindur er í reglugerðinni sem er tíu núna. Veitingastaðir sem eru með heimsendingaþjónustu mega afgreiða út um hurðina til ellefu,“ er haft eftir Víði.