![Útilegukortið komið í sölu](https://matvis.is/wp-content/uploads/2024/04/istock-1483598953.jpg)
Útilegukortið 2024 er komið í sölu á orlofsvefnum.
Kortið veitir tveim fullorðnum og fjórum börnum undir 16 ára aldri fría gistingu á tjaldsvæðum samstarfsaðila Útilegukortsins í allt að 28 gistinætur á hverju starfsári þess. Engin takmörk eru fyrir því hve oft má koma á hvert tjaldsvæði innan gistináttanna 28 en einungis má gista í fjórar nætur samfellt í hvert skipti. Útilegukortið gildir fyrir tjöld, tjaldvagna, fellihýsi, hjólhýsi og húsbíla.
Kortið gildir frá þeirri dagsetningu sem tjaldsvæðin opna og til 15. september 2024.
Kortið kostar 17.500 krónur.