Undan­keppni fyrir Nor­rænu nema­keppnina

Keppnin um matreiðslu- og framleiðslunema ársins fer fram þriðjudaginn 24. október næstkomandi. Tveir stigahæstu keppendurnir úr hvorri grein munu verða fulltrúar Íslands í Norrænu nemakeppninni sem haldin verður í Helsinki í apríl 2024.

Keppnin er fyrir þá sem eru 23 ára eða yngri og eru á námssamningi þegar Norræna nemakeppnin fer fram. Skráningarfrestur er til 15. október.