Umsóknir um orlofshús

Opnað verður fyrir umsóknir um orlofshús innanlands fyrir sumarið 2022 þann 1. mars klukkan 09:00. Hægt verður að sækja um til 22. mars en orlofshúsum verður venju samkvæmt úthlutað eftir punktakerfi. Sæki tveir eða fleiri um sömu eign á sama tímabili fær sá sem hefur fleiri punkta húsið.

Hér má sjá orlofshús MATVÍS. Sjö hús og íbúðir eru á Íslandi en auk þess hefur félagið til útleigu hús á Spáni og á Flórída í Bandaríkjunum.