Umsóknarfrestur vegna sveinsprófa

Sveinspróf í matreiðslu, framreiðslu, bakaraiðn og kjötiðn fara fram í janúar 2023. Þeim sem hyggja á að þreyta sveinspróf er bent á að umsóknarfrestur er til 1. nóvember 2022.

Nánari dagsetningar prófanna verða birtar á vef Iðunnar fræðsluseturs um leið og þær liggja fyrir.

Með umsókn skal leggja fram afrit af námssamningi, lífeyrissjóðsyfirlit eða staðfestingu frá skóla úr rafrænni ferilbók og burtfararskírteini með einkunnum eða staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast í desember 2022.

Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður er mismunandi eftir iðngreinum.

Umsóknareyðublöð má nálgast hér.