Sveinspróf í janúar

Sveinspróf í matreiðslu, framreiðslu, bakaraiðn og kjötiðn verða haldin í janúar 2024. Þetta kemur fram á vef IÐUNNAR fræðsluseturs. Prófin eru háð fyrirvara um þátttöku. Umsóknarfrestur er til 1. nóvember 2023.

Með umsókn skal leggja fram afrit af námssamningi, lífeyrissjóðsyfirlit eða staðfestingu frá skóla úr rafrænni ferilbók. Einnig burtfararskírteini með einkunnum eða staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast í desember 2023. Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður er mismunandi eftir iðngreinum.

Umsóknareyðublað má nálgast hér.

Athugið að myndin er af undirbúningi keppenda Íslands fyrir samnorrænu nemakeppnina sem haldin var fyrr ár árinu.