Starfsnám: IÐAN kemur að borðinu

Mennta- og menningarmálaráðuneyti, IÐAN fræðslusetur og Rafmennt fyrir hönd atvinnulífsins hafa gert með sér samstarfsyfirlýsingu um að fjölga starfsnámsnemum og styrkja samstarf framhaldsskóla og atvinnulífs til eflingar vinnustaðanáms. Þetta kemur fram á vef IÐUNNAR en skrifað var undir í dag í vélsmiðjunni Héðni.

Eins og kunnugt er tekur reglugerð sem kveður á um að skólarnir beri ábygð á umsjón með vinnustaðanámi gildi 1. ágúst næstkomandi. Iðnfélögin hafa gagnrýnt að sú reglugerð hafi verið samin án aðkomu fulltrúa iðnaðarmanna. Nú hefur verið ákveðið að IÐAN og Rafmennt, fyrir hönd atvinnulífsins, komi að því að koma nemendum að í starfsnámi á vinnustöðum.

Félögin lýsa, með samstarfsyfirlýsingunni, sig reiðubúin til að:

  • Aðstoða framhaldsskóla við að finna pláss á vinnustöðum til að koma nemum á iðnmeistara-, fyrirtækis- eða stofnanasamning, sbr. 5. gr. reglugerðarinnar.
  • Aðstoða framhaldsskóla við að finna pláss á vinnustöðum fyrir nemendur á skólaleið, sbr. 6. gr. reglugerðarinnar.
  • Hvetja fyrirtæki til að bjóða nemum í vinnustaðanám og stuðla að því að ávallt séu til staðar hæf fyrirtæki sem geta tekið nema.
  • Sinna eftirliti með fyrirtækjum, veita umsögn um að þau uppfylli sett skilyrði um hæfni og koma upplýsingum þess efnis til Menntamálastofnunar þannig að skrá stofnunarinnar yfir fyrirtæki sem geta tekið nema verði ávallt sem réttust.
  • Aðstoða framhaldsskóla við að skipuleggja vinnustaðanám hjá fleiri en einum vinnustað í samræmi við 4. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar ef þess þarf vegna nýrra hæfniviðmiða.
  • Aðstoða vinnustaði við að skipuleggja vinnustaðanám í samstarfi við framhaldsskóla í þeim tilgangi að fullnýta getu fyrirtækja til að taka fleiri nema á samning þar sem verkefni og vinnuálag hjá fyrirtækjum dreifist með mismunandi hætti yfir árið.
  • Aðstoða framhaldsskólana í starfsgreinum þar sem vinnustaðapláss skal vera til reiðu við upphaf náms. Atvinnulífið vill aðstoða þá sem áhuga hafa á slíku námi en hefur ekki tekist að komast í vinnustaðanám við að nálgast fyrirtæki sem heimilt er að taka nemendur á samning.
  • Aðstoða vinnustaði við innleiðingu á rafrænum ferilbókum í samstarfi við Menntamálastofnun og framhaldsskólana.

Vinna hefst nú þegar við undirbúning samstarfsins, að því er segir á vef IÐUNNAR.

Meðfylgjandi mynd er af vef IÐUNNAR. Á henni eru Páll Magnússon, ráðuneytisstjóri í mennta- og menningarmálaráðuneytinu, Jóhanna Klara Stefánsdóttir stjórnarformaður IÐUNNAR og Margrét Halldóra Arnarsdóttir stjórnarformann Rafmenntar. Þau rituðu undir samninginn. Auk þeirra eru á myndinni Þór Pálsson, framkvæmdastjóri Rafmenntar og Hildur Elín Vignir, framkvæmdastjóri IÐUNNAR.