Starf í móttöku laust til umsóknar

Fagfélögin óska eftir að ráða áreiðanlegan og þjónustulundaðan aðila í 100% starf í móttöku. Vinnutími er alla virka daga kl. 8-16/15 – frí annan hvern föstudag.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Móttaka og símsvörun
  • Samskipti og almenn upplýsingagjöf við félagsfólk
  • Ýmiss konar umsýsla og skráning s.s. umsókna í sjóði og afgreiðsla orlofshúsa
  • Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Hæfni og lipurð í samskiptum
  • Rík þjónustulund
  • Skipulagshæfileikar og nákvæmni í vinnubrögðum.
  • Stúdentspróf eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Þekking á DK félagakerfi og Frímanni orlofshúsakerfi er kostur
  • Gott vald á íslensku og ensku
  • Kunnátta í pólsku mikill kostur
  • Þekking á málefnum stéttarfélaga er kostur

Fríðindi í starfi

  • Niðurgreiddur hádegismatur
  • Heilsustyrkur
  • Skemmtilegt samstarfsfólk og öflugt starfsmannafélag

Fagfélögin eru Byggiðn, MATVÍS, RSÍ og VM sem reka sameiginlega skrifstofu með það að markmiði að bæta þjónustu við félagsfólk og efla sameiginlega ásýnd félaganna út á við.

Umsóknarfrestur er til 24.nóvember 2023. Kostur að geta hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar veitir Pálmi Finnbogason – palmi@fagfelogin.is – s. 5400100