Staðan í kjaraviðræðum

Nokkrir samningafundir hafa verið haldnir í samningaviðræðum iðnfélaganna við Samtök atvinnulífins. Núgildandi samningur Samiðnar við SA rennur út 1. nóvember næstkomandi, eða á þriðjudaginn.

MATVÍS tekur þátt í samfloti iðn- og tæknifólks líkt og í síðustu tveimur kjaralotum. Mikil samskipti hafa einnig átt sér stað við aðra hópa á almennum vinnumarkaði, eins og SGS og LÍV.

Mikil áhersla er lögð á það af hálfu félaganna að samið verði um endurnýjun samninga sem allra fyrst. Iðn- og tæknifólk hefur að sjálfsögðu sett fram þá kröfu að næstu kjarasamningar gildi frá lokum þeirra sem nú eru að renna út.

Á fundunum hefur kröfugerð iðnfélaganna og samningsmarkmið verið lögð fram og rædd. Næsti fundur hefur verið boðaður í byrjun næstu viku.

Óskar Hafnfjörð Gunnarsson, formaður