![Samninganefndir funda á fimmtudag](https://matvis.is/wp-content/uploads/2024/02/saj4141-scaled.jpg)
Samninganefndir Fagfélaganna (RSÍ, MATVÍS og VM) hafa verið boðaðar á fund í Húsi fagfélaganna á Stórhöfða 29-31, fimmtudaginn 15. febrúar klukkan 11:30.
Efni fundarins er staða kjaraviðræðna við Samtök atvinnulífsins. Eins og kunnugt er slitnaði upp úr kjaraviðræðum Breiðfylkingarinnar við SA fyrir helgi. Fagfélögin munu aftur móti funda með SA á morgun, miðvikudag.
Gengið er inn í húsið Grafarvogsmegin en boðið verður upp á hádegisverð.
Athugið að fundurinn er eingöngu fyrir fulltrúa í samninganefndum þessara félaga