Opnað fyrir bókanir á Spáni

Á morgun, þann 3. október, verður opnað fyrir bókanir á orlofsíbúð félagsins á Spáni. Tímabilið sem um ræðir er frá 27. mars til 10. október 2024.

Hægt verður að bóka frá klukkan 10:00. Fyrstur kemur, fyrstur fær.

Um er að ræða svokölluð fjarkahús; fjórar íbúðir eru í húsinu, sem er á tveimur hæðum.

Á orlofsvefnum má finna eftirfarandi lýsingu á eigninni og umhverfi hennar:

Á neðri hæð er gengið inn í rúmgott alrými, stofa, eldhús og borðstofa. Einnig er eitt svefnherbergi með hjónarúmi (152 cm) á neðri hæð. Á annarri hæð eru 2 svefnherbergi, annað með hjónarúmi (152 cm) og hitt með koju fyrir tvo. Útgengi út á svalir. Baðherbergi er á báðum hæðum. Góð sameign með fallegum sameiginlegum sundlaugargarði. Sér bílastæði á lokaðri lóð fylgir. Á La Zenía svæðinu suður af Torrevieja stutt frá Villamartin er ný íbúð MATVÍS. Aksturstími frá Alicante flugvelli er ca 50 mínútur sé farið eftir N332. Íbúðin er í ca 20 mín. göngufæri (ca 2.5 km) frá La Zenía Boulevard verslunarmiðstöðinni. Einnig er örstutt að ganga í Los Dolces þjónustukjarnann, þar sem er gott úrval veitingastða og verslana. Miðborg Torrevieja er í ca 15 mín. akstursleið. Fjölbreytt úrval golfvalla er í nágrenninu t.d. Villarartin, Las RAmblas, Campoamor, Las Colinas ofl. Lyklar sækjast á skrifstofu MATVÍS fyrir brottför og skilast þangað aftur.