Opið fyrir umsóknir um viðspyrnustyrki

Móttaka umsókna um viðspyrnustyrki hófst hjá Skattinum í vikunni. Styrkjunum er ætlað að styðja fyrirtæki og einyrkja sem hafa orðið fyrir að minnsta kosti 60 prósenta tekjufalli vegna kórónuveirunnar.

Markmiðið með styrkjunum er að rekstraraðilar geti viðhaldið nauðsynlegri lágmarksstarfsemi á meðan áhrifa faraldursins gætir, varðveit viðskiptasambönd og tryggt viðbúnað þegar úr rætist, að því er segir á vef Stjórnarráðsins. 

Styrkirnir gilda vegna tekjufalls á tímabilinu frá 1. nóvember 2020 til 31. maí 2021. Þeir geta numið allt að 2,5 milljónum á mánuði.

Sótt er um á vef Skattsins og þar eru allar nánari upplýsingar um viðspyrnustyrkina.