Ný þjónusta hjá Virk

VIRK starfsendurhæfingarsjóður hefur bætt nýrri þjónustu í vopnabúr sitt. Þjónustan gengur undir heitinu „Velvirk í starfi“. Í því felst að starfsfólki og stjórnendum býðst aukinn stuðningur til að efla báða hópa, auka vellíðan í vinnu og koma í veg fyrir brotthvarf af vinnumarkaði.

Í boði er stuðningsefni á velvirk.is, hægt er að hringja í sérfræðinga Velvirk í starfi og mögulegt er að senda inn fyrirspurn. 

Hlutverk VIRK er að efla starfsgetu einstaklinga með heilsubrest sem stefna að aukinni þátttöku á vinnumarkaði.

Hugmyndin er að mæta þörf starfsfólk og stjórnenda í atvninulífinu fyrir ráðgjöf um möglegar leiðir þegar því sjálfu eða samstarfsfólki líður ekki vel í vinnunni af heilsufarsástæðum eða vegna annarra aðstæðna sem hafa áhrif á framgang þess í starfi.

Boðið er upp á upplýsingar og fræðslu á síðunni www.velvirk.is – bæði fyrir stjórnendur og starfsmenn. Eins geta starfsmenn og stjórnendur sent inn fyrirspurnir og eins fengið samtal við sérfræðinga Velvirk í starfi.

Nánari upplýsingar um stuðningsefnið á velvirk.is og hvernig hægt er að komast í samband við sérfræðinga Velvirk í starfi má finna á virk.is – hér.