Lokað til hádegis vegna veðurs

Lokað verður á skrifstofum MATVÍS á morgun til klukkan 12 á hádegi. Ástæðan er slæm veðurspá og tilmæli almannavarna.

Almannavarnir hafa hvatt fólk til að vera heima í fyrramálið eða þar til veðrið gengur niður og búið er að ryðja götur.