Konur fara í verkfall 24. október

Alþýðusamband Íslands er á meðal þeirra samtaka sem efna til kvennaverkfalls 24. október. Boðað er til allsherjarverkfalls; konur eru hvattar til að mæta ekki til vinnu, annast ekki börnin, standa ekki „þriðju vaktina” og eftirláta körlunum að sinna heimilinu, börnunum, eldra fólkinu og öllu hinu meðfram sinni fullu vinnu.  

Á vef ASÍ er bent á að á þeim tæplega 50 árum sem liðin eru frá fyrsta kvennaverkfallinu hefur vissulega náðst markveður árangur í jafnréttismálunum. Ennþá er samt langt í land.  

  • Atvinnutekjur kvenna eru enn 21% lægri en karla og hefðbundin kvennastörf eru talsvert verr launuð en karlastörf.
  • Fólk sem starfar við ræstingar, umönnun og menntun barna og þjónustu við sjúka og aldraða myndar láglaunahópa í samfélaginu.
  • Atvinnuþátttaka kynjanna er svipuð — en konur bera langmesta ábyrgð á heimilishaldi og umönnun.

Fram kemur að auk þess kerfisbundna vanmats á störfum kvenna hér á landi séu önnur meginþemu verkfallsins kynbundið og kynferðislegt ofbeldi sem meira en 40% kvenna verða fyrir á lífsleiðinni.  

Konur koma saman til útifundar á Arnarhóli í Reykjavík kl. 14:00 á verkfallsdaginn. Unnið er að skipulagningu funda og viðburða viða um land. 

Hægt er að skrá sig á Facebook-viðburð verkfallsins hér.