Kjarakönnun frá Gallup send til félagsmanna

Kjarakönnun frá MATVÍS mun verða send félagsmönnum í vikunni. Hún mun berast í tölvupósti eða með SMS frá Gallup.

MATVÍS hefur það hlutverk að berjast fyrir réttindum félagsmanna sinna og  veita þeim margvíslega þjónustu. Niðurstöður könnunarinnar verða meðal annars nýttar til að móta áherslur MATVÍS í aðdraganda næstu kjarasamninga.

Kjör félagsmanna, laun og vinnutími eru meginviðfangsefni könnunarinnar. Þar er einnig spurt um viðhorf til þjónustu MATVÍS, afstöðu til náms auk þess sem í könnuninni er að finna spurningar um kynferðislega áreitni og einelti á vinnustöðum. Brýnt er fyrir félagið að átta sig á útbreiðslu vandamála af þeim toga á meðal félagsmanna. Aukin vitneskja um umfang þessara mála mun reynast félaginu dýrmætur efniviður til að móta aðgerðir til hagsbóta fyrir félagsmenn.

Öll svör við spurningunum eru trúnaðarmál og ekki hægt að rekja til einstaklinga. Þátttakendum er frjálst að sleppa því að svara könnuninni í heild eða einstökum spurningum. Góð þátttaka mun aftur á móti auka áreiðanleika upplýsinga um kjör og líðan félagsmanna.

Gallup annast framkvæmd könnunarinnar og gagnaúrvinnslu. Ef spurningar um framkvæmd hennar vakna má hafa samband við Tómas hjá Gallup (tomas.bjarnason@gallup.is) eða Óskar Hafnfjörð Gunnarsson, formann MATVÍS (oskar@matvis.is).

Með fyrir fram þökk fyrir þátttökuna,
MATVÍS.