![Kátt á hjalla á jólaballi MATVÍS](https://matvis.is/wp-content/uploads/2023/12/jolaball-9.jpg)
Óhætt er að segja að gleðin hafi ráðið ríkjum á jólaballi MATVÍS sem fram fór í Gullhömrum í Grafarholti síðastliðinn sunnudag.
Gestir jólaballsins áttu þar notalega stund saman; dönsuðu í kring um jólatré og léku sér að uppblásnum blöðrum í allra kvikinda líki.
Kúnstugur jólasveinn rann á hljóðið og tók þátt í gleðinni. Hann færði yngri kynslóðinni svolítinn glaðning og tók þátt í að gera viðburðinn eftirminnilegan fyrir unga sem aldna. Eins og meðfylgjandi myndir bera með sér var kátt á hjalla.
MATVÍS þakkar fyrir samveruna og færir félagsfólki nær og fjær bestu óskir um gleðileg jól.
![](https://matvis.is/wp-content/uploads/2023/12/jolaball5-1024x672.jpg)
![](https://matvis.is/wp-content/uploads/2023/12/jolaball-11-1024x683.jpg)
![](https://matvis.is/wp-content/uploads/2023/12/jolaball-10-1024x683.jpg)
![](https://matvis.is/wp-content/uploads/2023/12/jolaball-8-1024x683.jpg)
![](https://matvis.is/wp-content/uploads/2023/12/jolaball-7-1024x683.jpg)
![](https://matvis.is/wp-content/uploads/2023/12/jolaball-3-1024x683.jpg)
![](https://matvis.is/wp-content/uploads/2023/12/jolaball-2-1024x683.jpg)
![](https://matvis.is/wp-content/uploads/2023/12/jolaball-1-1024x737.jpg)