Dagana 16. – 18. mars 2023 mun Verkiðn halda Íslandsmót iðn- og verkgreina og framhaldsskólakynningu í Laugardalshöllinni í samvinnu við mennta- og barnamálaráðuneytið, sveitarfélög og fagfélög iðn- og starfsgreina.
Á mótinu verður að þessu sinni keppt í 21 faggrein þar sem keppendur takast á við krefjandi og raunveruleg verkefni í samkeppni sem reynir á hæfni, skipulagshæfileika og fagmennsku.
Greinarnar eru:
Bakaraiðn, bifreiðasmíði, bílamálun, fataiðn, forritun, framreiðsla, grafísk miðlun, gull- og silfursmíði, hársnyrtiiðn, húsasmíði, kjötiðn, matreiðsla, málaraiðn, málmsuða, pípulagnir, rafeindavirkjun, rafvirkjun, skrúðgarðyrkja, snyrtifræði, vefþróun, veggfóðrun og dúkalögn.
Sigur á Íslandi getur gefið möguleika á að fara og keppa í Evrópu á Euroskills en næsta keppni fer fram í Gdansk í september 2023.
Hér má sjá viðtal við Ingunni Sigurðardóttur matreiðslumeistara, sem hefur mikla reynslu af þátttöku í keppnum. Hún deilir hér heilræðum og ræðir reynslu sína og ávinning af þátttöku í keppni sem þessari.