Iðn- og tæknifólk undirbýr aðgerðir

Samninganefndir Fagfélaganna (RSÍ, VM og MATVÍS) samþykktu á fjölmennum fundi í dag að stofna aðgerðahóp til að undirbúa verkfallsaðgerðir. Fagfélögin hafa í samfloti fleiri félög vinnandi stétta freistað þess að ná kjarasamningi við Samtök atvinnulífsins fyrir almennan vinnumarkað. Þær viðræður hafa dregist á langinn og enn sér ekki til lands.

Á annað hundrað manns, meðlimir samninganefndanna, mættu á fundinn í Húsi fagfélaganna í dag. Eins og Fagfélögin greindu frá í síðustu viku gáfu samninganefndir Fagfélaganna fulltrúum sínum við samningaborðið 10 daga til að ná samningum, ellegar yrði farið í undirbúning aðgerða.

Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Fagfélaganna, kynnti samninganefndum stöðu mála í dag. Í máli hans kom meðal annars fram að lítið hefur áunnist við samningaborðið í Karphúsinu og fátt bendir til að skrifað verði undir kjarasamninga á næstu dögum. Við þá stöðu geta samninganefndir Fagfélaganna ekki unað og munu þær fyrir vikið láta sverfa til stáls.

Hópurinn mun skila tillögum sínum næstkomandi föstudag. Ljóst er að mikill vilji er á meðal félagsfólks þessara félaga til að leggja niður störf til að knýja á um kjarabætur en háir vextir og mikil verðbólga hefur gengið nærri heimilum landsins undanfarin misseri.

Fyrir hönd samninganefnda Fagfélaganna,
Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður RSÍ
Guðmundur Helgi Þórarinsson, formaður VM
Óskar Hafnfjörð Gunnarsson, formaður MATVÍS