Húsfyllir á námskeiði um lífeyrismál

Húsfyllir var á vel heppnuðu námskeiði um lífeyrismál sem fram fór í Húsi fagfélaganna á Stórhöfða 29-31 í gærkvöldi. Um 90 þátttakendur voru skráðir á námskeiðið, svo nota þurfti tvo fundarsali.

Björn Berg Gunnarsson annaðist fræðsluna en hann hefur haldið hundruð fyrirlestra og námskeiða hjá fyrirtækjum, stofnunum, félagasamtökum og skólum. Á þessu ítarlega og gagnlega námskeiði var vandlega farið yfir allt sem nauðsynlegt er að vita varðandi lífeyrismál og fjármálahlið starfsloka.

Meðal þeirra spurninga sem svarað var voru:

  • Hvenær og hvernig hentar að sækja lífeyrisgreiðslur?
  • Hvernig göngum við á séreignarsparnað og hvaða áhrif hefur tilgreind séreign?
  • Hvað þarf að vita varðandi greiðslur og skerðingar almannatrygginga?
  • Er skynsamlegt að sækja hálfan lífeyri?
  • Hvernig deili ég lífeyri með makanum mínum?
  • Hvaða skatta kem ég til með að greiða?

Á námskeiðinu öðlast þátttakendur betri yfirsýn yfir réttindi sín og þá valkosti sem í boði eru. „Bætt þekking dregur úr líkum á kostnaðarsömum mistökum og gefur færi á að hámarka virði lífeyris og réttinda,” eins og segir í kynningu á námskeiðinu á heimasíðu Björns.

Ljóst er að áhuginn á námskeiði sem þessu er mikill. Fagfélögin stefna á að halda annað námskeið um lífeyrismál áður en langt um líður og verður það auglýst hér á síðunni.