Helmingur launafólks nær vart endum saman

Tæplega helmingur vinnandi fólks á Íslandi nær varla endum saman. Þegar hlutfallið var mælt í fyrra var það um þriðjungur. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu Vörðu – Rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins. Skýrslan leiðir í ljós slæma andlega heilsu einstæðra mæðra og versnandi hag launafólks.

Ljóst er að þeim sem ná vart endum saman hefur fjölgað mikið á einu ári. Í skýrslunni er bent á að húsnæðiskostnaður íþyngi leigjendum og ungu fólki. Almennt gefur skýrslan til kynna versnandi hag vinnandi fólks í landinu.

Samkvæmt rannsókninni býr tæplega fjórðungur einstæðra foreldra við efnislegan skort og allt að þriðjungur þeirra getur ekki greitt kostnað vegna félagslífs barna sinna. Um það bil helmingur einstæðra foreldra gæti ekki staðið undir óvæntum 80.000 kr. útgjöldum án þess að taka lán.

Staða innflytjenda mælist markvert verri en innfæddra Íslendinga þriðja árið í röð.

Rannsóknin náði til félaga í aðildarfélögum Alþýðusambands Íslands (ASÍ) og BSRB – heildarsamtaka stéttafélaga starfsmanna í almannaþjónustu. Þetta er þriðja árið í röð sem könnun á lífsskilyrðum launafólks er gerð og hefur fjöldi svara aldrei verið meiri en nú.

Skýrsluna má lesa í heild sinni hér.

Á meðfylgjandi mynd eru Kristín Heba Gísladóttir, framkvæmdastjóri, skýrslu Vörðu, Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, og Finnbjörn A. Hermansson, forseti ASÍ.