Hefur þú efni á að eignast barn?

Á morgun, fimmtudag, stendur stjórn ASÍ-UNG fyrir opnum rafrænum viðburði þar sem rætt verður um barneignir, kostnað sem fylgir, hvernig núverandi kerfi virkar og hvað má betur fara. Viðburðurinn fer fram á Zoom og hefst klukkan 14.
Óhætt er að hvetja alla áhugasama til að fylgjast með fundinum.

Boðið verður upp á þýðingu á ensku.

Dagskrá fundarins

  • Gundega Jaunlinina, formaður ASÍ-UNG. 
    – Fer yfir tölur frá fæðingarorlofssjóð. 
  • Ingólfur V. Gíslason, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands. 
    – Árangursrík lagasetning. 
  • Vilhjálmur Árnason, alþingismaður og í velferðarnefnd Alþingis. 
    – Af hverju á fjölskyldan að ráða skiptingunni? 
  • Þóra Jónsdóttir, lögfræðingur Barnaheilla. 
    – Hugleiðingar frá Barnaheillum um ný lög um fæðingarorlof. 
  • Spurningar og umræður.