Golfmót iðnfélaganna

Golfmót iðnfélaganna verður haldið þann 11. september á Jaðarsvelli Akureyri. Mæting er klukkan 12:00 og ræst út á öllum teigum kl 13:00.

Leikið verður 2 manna Texas scramble, samanlögð forgjöf deilt með 3.

Vegleg verðlaun verða í boði fyrir hin ýmsu högg út á velli og dregið úr skorkortum að mat loknum. Komi til þess að aflýsa þurfi matnum verður dregið úr skorkortum að leik loknum.

Nánari upplýsingar á heimasíðu GA og hjá stéttarfélögunum þegar nær dregur. Verðlaunaafhending fer fram að loknu móti.

Skráning er hjá GA í síma 4622974 eða á gagolf@gagolf.is.