Fulltrúar launamanna í stjórn Birtu

Valnefnd Birtu lífeyrissjóðs auglýsir eftir frambjóðendum til þess að taka sæti í stjórn sjóðsins kjörtímabilið 2024 til 2026.

Fulltrúaráð launamanna Birtu kýs tvo stjórnarmenn (karl og konu) til tveggja ára og einn varamann (konu) til tveggja ára í stjórn sjóðsins.

Samkvæmt samþykktum Birtu lífeyrissjóðs (gr. 5.10) hefur valnefnd m.a. þann yfirlýsta tilgang að tryggja að stjórn sjóðsins endurspegli fjölbreytni og breidd í hæfni, reynslu og þekkingu stjórnarmanna sem og að tryggja gagnsæi í málum um tilnefningu stjórnarmanna.

Áhugasamir geta gefið kost á sér með því að senda inn umsókn í formi útfyllts framboðseyðublaðs og senda það á netfangið valnefnd@birta.is fyrir kl. 16.00 fimmtudaginn 22. febrúar 2024.

Fyrirspurnir skulu einnig berast á netfangið: valnefnd@birta.is

Skjöl sem tilheyra kjöri fulltrúa launamanna í stjórn Birtu:

  • Auglýsing sem birtist í Morgunblaðinu 8. febrúar
  • Eyðublaðum framboð til setu í stjórn Birtu lífeyrissjóðs
  • Starfsreglur valnefndar launamanna Birtu lífeyrissjóðs