Framlag í matvælasjóð aukið – opið fyrir umsóknir

Tvöhundruð og fímmtíu milljóna króna viðbótarframlag hefur verið sett í Matvælasjóð. Samtals mun sjóðurinn útdeila 630 milljónum króna.

Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins. Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Margrét Hólm Valsdóttir, formaður Matvælasjóðs, opnuðu í vikunni fyrir umsóknir í sjóðinn.

Hlutverk hans er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu íslenskra matvæla og hliðarafurða þeirra úr landbúnaðar- og sjávarafurðum á landsvísu. Markmið sjóðsins er að ná til verkefna á öllum stigum, allt frá hugmyndum til markaðssetningar og hagnýtra rannsókna.

Sjóðurinn hefur fjóra flokka:

Bára styrkir verkefni á hugmyndastigi. Styrkur úr Báru fleytir hugmynd yfir í verkefni.

Kelda styrkir rannsóknaverkefni sem miða að því að skapa nýja þekkingu.

Afurð styrkir verkefni sem komin eru af hugmyndastigi en eru þó ekki tilbúin til markaðssetningar, en leiða af sér afurð.

Fjársjóður styrkir sókn á markað. Fjársjóður er samansafn verðmætra hluta og styrkir fyrirtæki til að koma sínum verðmætum á framfæri.

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér heimasíðu sjóðsins, www.matvælasjóður.is en þar má finna handbók Matvælasjóðs, upplýsingar um umsóknir og allar nánari upplýsingar um sjóðinn. Í þessari annarri úthlutun hefur verið unnið að því að einfalda og skýra umsóknarferlið, handbók fyrir umsækjendur hefur verið uppfærð og skerpt á áherslum sjóðsins.

Nánar á vef Stjórnarráðsins.