Hús Fag­fé­laganna styrkir Rauða krossinn

Iðnfélögin í Húsi Fagfélaganna hafa veitt innanlandsstarfi Rauða kross Íslands fjárstuðning fyrir jólin. Með þessu vilja félögin, sem eru MATVÍS, FIT, Byggiðn, RSÍ og Samiðn styrkja Rauða krossinn í því mikilvæga verkefni að styðja þá fjárhagslega yfir jólahátíðina sem höllum fæti standa í samfélaginu.

Iðnfélögin sem standa að 2F Húsi Fagfélaganna eru nú að ljúka sínu fyrsta starfsári í sameiginlegu húsnæði og með sameiginlega þjónustuskrifstofu. Markmiðið með nánara samstarfinu er að efla starf félaganna og auka vægi þeirra til hagsbóta fyrir félagsmenn sína og iðngreinarnar í landinu.

Félögin óska Rauða krossinum velfarnaðar og landsmönnum öllum gleðilegra jóla.