Búa sig undir norrænu nemakeppnina

Undirbúningur fyrir Norræna nemakeppnina í matreiðslu og framreiðslu er í fullum gangi en keppnin fer fram í Menntaskólanum í Kópavogi  núna um helgina, 23. og 24. apríl. Allir velkomnir á staðinn.

Nemar í matreiðslu og framreiðslu frá Íslandi, Finnland, Danmörku, Noregi og Svíþjóð keppa samtals í tvo daga í fjölbreyttum verkefnum. Í framreiðslu er keppt í helstu hæfniþáttum framreiðslustarfsins s.s. þjónustu, borðlagningu, vínsmakki, blöndun áfengra og óáfengra drykkja, para saman vín/drykkja- og matseðil, fyrirskurð, eldsteikingu og framreiðslu. Í matreiðslu er keppt í beitingu á mismunandi  matreiðsluaðferða, framsetningu á réttum, bragði og fl.

Fyrri daginn matreiða þau heitan grænmetisforrétt, Aamuse bouches þar sem megin hráefnið er kjúklingalifur og þang  og heitan grænmetisrétt. Á sunnudeginum vinna matreiðslu- og framreiðslunemarnir saman að verkefni dagsins sem er að setja upp matseðil- og drykkjarseðil fyrir fimm rétta máltíð. Hráefnið seinni daginn er óþekkt Mysetery box.

Í matreiðslu keppa fyrir Íslands Klara Lind Óskarsdóttir nemi á Hótel Húsafelli og Guðmundur Halldór Bender nemi á Héðini. Þau eru á meðfylgjandi mynd. Í framreiðslu keppa þau Petra Sif Lárusdóttir nemi á Rub23 og Tumi Dagur Haraldsson nemi á VOX.