Bridgevertíðin hefst

Nú fer vetrarstarfið hjá iðnfélögunum að byrja og verður fyrsta bridgemót vetrarins fimmtudaginn 7. október. Spilað verður svo hálfsmánaðarlega til jóla.

Mótaröð:
Upphitun 7.okt.
FIT-bikarinn 21. okt og 4. nóv.
Hraðsveitakeppni Verkfærasölunnar 18. nóv. og 2. des.
Jólamót 16. des. 

Spilað verður í Húsi Fagfélaganna að Stórhöfða 31 (gengið inn Grafarvogsmegin) og hefst stundvíslega kl. 19:00. Allir félagsmenn aðildarfélaga 2F eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir.