Breytingar vegna viðurkenningar á menntun iðnaðarfólks

Frá og með 1. febrúar nk. tekur ENIC NARIC skrifstofan við afgreiðslu umsókna um viðurkenningu á menntun og starfsreynslu erlendra iðnaðarmanna samkvæmt reglugerð nr. 585/2011. Verkefnið var áður hjá Menntamálastofnun, en þegar fyrir lá að sú stofnun yrði lögð niður var ákveðið að fela ENIC NARIC skrifstofunni að taka við verkefninu.

Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.

Hér eftir þurfa umsækjendur að beina umsóknum sínum til ENIC NARIC skrifstofunnar á vef hennar (enicnaric.is). Starfsmenn ENIC NARIC ganga úr skugga um að öll tilskilin gögn fylgi umsókn og senda hana við svo búið til umsagnar hjá fagaðilum, IÐUNNI fræðslusetri eða Rafmennt, eftir því um hvaða starfsgrein er að ræða.

Þegar umsögn fagaðila liggur fyrir afgreiðir ENIC NARIC skrifstofan umsóknina og leiðbeinir umsækjendum eftir atvikum um næstu skref, t.d. ef niðurstaðan leiðir til útgáfu sérstaks leyfisbréfs sem veitir rétt til starfa í löggiltri iðn hér á landi.

Þeir sem njóta góðs af þjónustunni eru bæði ríkisborgarar frá löndum EES-svæðisins og þegnar ríkja utan EES.