Breytingar á kjörum 1. janúar 2022

Neðangreind tilkynning er sameiginleg frá Húsi Fagfélaganna, Stórhöfða 31. Kjarabreytingarnar miða við kjarasamninga Fagfélaganna Stórhöfða og SA.

Frá 1.1.2022 tekur gildi einhliða ákvörðun starfsmanna í kosningu, þar sem meirihluti ræður, um að stytta vinnutímann. Ákvæðið á við ef ekki er búið að semja um vinnutímastyttingu í samræmi við grein 3.1.2. í kjarasamningi um styttingu vinnutímans.

Grein 5.13 í kjarasamningum Fagfélaganna og SA:

Staðlaður, valkvæður fyrirtækjaþáttur (gildir frá 1.1.2022)

Hafi ekki verið gert samkomulag á grundvelli þessa kafla um fyrirkomulag vinnutíma geta starfsmenn fyrirtækis kosið um upptöku staðlaðs fyrirtækjaþáttar kjarasamnings. Í staðlaða fyrirtækjaþættinum felst 36 stunda og 15 mínútna virkur vinnutími á viku að jafnaði (virkur vinnutími að jafnaði 7 klst. og 15 mín. á dag).

Náist ekki samkomulag um fyrirkomulag styttingar verður virkur vinnutími á dag 7 klst. og 15 mínútur. Deilitala til útreiknings tímakaups verður 157,08 og greiðist yfirvinna 2 fyrir vinnu umfram 40,25 klst. á viku að meðaltali á mánuði / launatímabili. Dagleg viðvera á vinnustað er virkur vinnutími að viðbættum tíma sem starfsmaður er ekki við störf.

Það að taka upp staðlaðan, valkvæðan fyrirtækjaþátt skv. grein 5.13 hefur ekki áhrif á kaffitíma en ef kaffitímum hefur verið breytt þá eigi vinnutími að vera 36 klst. 

Upptaka staðlaðs fyrirtækjaþáttar hefur ekki áhrif á vinnutíma á vinnustöðum þar sem virkur vinnutími er styttri en 36 stundir og 15 mínútur.

Staðlaður fyrirtækjaþáttur tekur gildi í upphafi þarnæstu mánaðamóta eftir samþykkt hans hafi tillaga um upptöku hans verið samþykkt í leynilegri atkvæðagreiðslu skv. 5. kafla kjara-samnings sem trúnaðarmaður starfsmanna stendur fyrir.

Sé gert samkomulag um annað fyrirkomulag vinnutíma á grundvelli þessa kafla fellur staðlaður fyrirtækjaþáttur niður á sama tíma.

Fyrsta skrefið til að nýta þetta ákvæði er að hafa samband við þitt stéttarfélag:

  • Láta greina núverandi vinnutíma.
  • Fá svar um hvað er mikið rými til styttingar
  • Fá svör um næstu skref.

Launahækkanir 1. janúar 2022

Almenn launahækkun: Öll dagvinnulaun hækka um 17.250 kr á mánuði.

Tímalaun hækka eftirfarandi:

DeilitalaHækkun per. Klst.
160107,81 kr.
157,08109,82 kr.
156110,58 kr.

Taxtar hækka um 25.000 kr á mánuði.

DeilitalaHækkun per. Klst.
160156,25 kr.
157,08159,15 kr.
156160,26 kr.

• Kauptaxtar hækka sérstaklega í samræmi við kjarasamninga. Þeir eru breytilegir eftir kjarasamningum.axtar hækka sérstaklega í samræmi við kjarasamninga. Þeir eru breytilegir eftir kjarasamningum.

Desemberuppbót

  • Desemberuppbót fyrir hvert almanaksár miðað við fullt starf er kr. 96.000,- fyrir árið 2021.
  • Fullt ársstarf telst í þessu sambandi 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof.
  • Uppbótin greiðist eigi síðar en 15. desember ár hvert, miðað við starfshlutfall og starfstíma, öllum starfsmönnum sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum eða eru í starfi fyrstu viku í desember.
  • Nánari upplýsingar um desemberuppbætur í öðrum samningum er að finna á heimasíðum félaganna.