272 umsóknir í Matvælasjóð

Alls bárust 272 umsóknir um styrki úr Matvælasjóði. Umsóknarfrestur rann út 6. júní. Sjóðurinn mun úthluta 630 milljónum til ýmissa verkefna. Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla og hliðarafurða úr landbúnaðar- og sjávarafurðum. Áhersla er á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvæla um land allt.  

Nú munu umsóknirnar fara til fagráða sjóðsins. Þær munu veita umsögn um umsóknirnar en í kjölfarið mun stjórn sjóðsins gera tillögu til Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um úthlutun.

Bára styrkir verkefni á hugmyndastigi og er styrknum ætlað að fleyta hugmynd yfir í verkefni. Alls bárust 124 umsóknir í Báru. 

Afurð styrkir verkefni sem komin eru af hugmyndastigi en eru þó ekki tilbúin til markaðssetningar, en leiða af sér afurð. Alls bárust 58 umsóknir í Afurð. 

Kelda styrkir rannsóknarverkefni sem miða að því að skapa nýja þekkingu. Alls bárust 47 umsóknir í Keldu. 

Fjársjóður styrkir sókn á markaði. Alls bárust 43 umsóknir í Fjársjóð.