Kjaradeilu vísað til sáttasemjara

MATVÍS hefur vísað kjaradeilu sinni við sveitarfélögin til Ríkissáttasemjara. Þetta var ákveðið eftir árangurslausan viðræðufund í síðustu viku en það er mat samninganefndar að sveitarfélögin hafi ekki sýnt áhuga á að ganga frá samningum fljótt og vel. Því hefur verið ákveðið að setja viðræðurnar undir verkstjórn ríkissáttasemjara.

Fundað verður í deilunni í dag, hjá sáttasemjara.