GOLFMÓT IÐNAÐARMANNA fer fram þann 2. júní 2018 á Hólmsvelli í Leiru (Leirunni)

Ræst verður út kl. 9.00. Skráning fer fram með rafrænum hætti og hægt er að nálgast skráningarform
á heimasíðum GRAFÍU, MATVÍS, Rafiðnaðarsambands Íslands, FIT, Samiðnar og Byggiðnar.
Mótsgjald er 4.000 kr. og innifalið í því er teiggjöf,
spil á vellinum og matur að loknu spili.
VEGLEG VERÐLAUN VERÐA Í BOÐI!
Veitt verða verðlaun fyrir:
Höggleik án forgjafar, punktakerfi, nándarverðlaun, einnig verður dregið úr skorkortum
Það eiga því allir möguleika en fyrst og fremst
verður þetta mikil skemmtun fyrir áhugamenn.
Golfmót iðnaðarmanna er haldið í fyrsta skipti sameiginlega en löng saga er fyrir
golfmótum flestra félaganna.

Skráning hérna