GOLFMÓT IÐNFÉLAGANNA
fer fram laugardaginn 1. september á Akureyri á Jaðarsvelli

Mæting kl. 12.00 í súpu og ræst verður út kl. 13.00. Skráning hjá Steindóri Ragnarssyni hjá GA
steindor@gagolf.is og hægt að setja fram óskir um meðspilara hjá honum.
Mótsgjald er 5.000 kr. og innifalið í því er teiggjöf,
spil á vellinum, súpa í hádeginu kl. 12.00 og matur að loknu spili.
VEGLEG VERÐLAUN VERÐA Í BOÐI!
Veitt verða verðlaun fyrir:
Höggleik án forgjafar, punktakerfi, nándarverðlaun, einnig verður dregið úr skorkortum
Það eiga því allir möguleika en fyrst og fremst
verður þetta mikil skemmtun fyrir áhugamenn.

Golfmót iðnfélaganna var haldið í fyrsta skipti sameiginlega í sumar en löng saga er fyrir
golfmótum flestra félaganna.