
Skrifstofa Fagfélaganna – VM, RSÍ og MATVÍS – verður lokuð frá 21. júlí til 1. ágúst vegna sumarleyfa starfsfólks. Skrifstofan verður opnuð aftur þriðjudaginn 5. ágúst kl. 8:00.
Kjaramál: Í neyðartilvikum er hægt að senda tölvupóst til kjarasvid@fagfelogin.is sé um kjaramál að ræða.
Orlofshús: Ef um er að ræða brýna aðstoð vegna orlofshúsa má senda tölvupóst til orlofsmal@fagfelogin.is. Varðandi almennar fyrirspurnir vekjum við athygli á þeim upplýsingum sem fram koma á heimasíðum félaganna og í leigusamningi þar sem m.a. má finna símanúmer umsjónarmanns.
Styrkir og sjúkradagpeningar: Umsóknir um styrki og sjúkradagpeninga þurfa að berastí síðasta lagi 11. júlí. Styrkir verða greiddir út föstudaginn 18. júlí og sjúkradagpeningar greiðast út fimmtudaginn 31. júlí. Umsóknir sem berast 12. til 18. júlí greiðast út mánudaginn 18. ágúst.