Hér fyrir neðan á sjá dagsetningar, reglur og aðrar upplýsingar vegna útleigu og úthlutun orlofshúsa. Smellið á dálkana til að sjá upplýsingarnar. Umsóknir um orlofshús fara fram á orlofsvefnum.
Íbúðir og orlofshús er hægt að leigja með því að fara inn á mínar síður á heimasíðu félagsins/orlofssíðu.
Starfsfólk skrifstofu Fagfélaganna veitir aðstoð sé þess þörf, hægt er að hringja í síma 5400100 frá kl 08:00-16:00 alla virka daga nema föstudaga frá kl 08:00-15:00.
Frá 9. janúar 2025 skal greiða fast bókunargjald kr. 5000 sem er hluti leiguverðs og endurgreiðist ekki ef hætt er við leigu.
(Sjá nánar hér neðar reglur vegna afbókana og endurgreiðslna)
Hægt er að bóka allt að átta gistinætur í orlofshúsi fyrstu 6 vikurnar á hverju umsóknartímabili. Eftir 6 vikurnar fjölgar möguleikunum á að bæta við sig gistinóttum. Á Spáni er hægt að bóka að hámarki 2 vikur.
Helgarleiga er ávallt frá föstudegi til mánudags.
Framsal á leigusamningi er með öllu óheimil.

Hverju húsi fylgir samningur sem leigutaki þarf að fara vel yfir áður en farið er í hús/íbúð.
Þar er nánari útlistun á því hvaða ábyrgð leigjandi ber á orlofseigninni og búnaði hennar meðan á leigutíma stendur.
Ef orlofseign er ekki nægilega vel þrifin við brottför að mati umsjónarmanns, er leigjanda sendur reikningur fyrir þrifum.

Sumartímabilið er 10 vikur, frá 10. júní til 20. ágúst 2027
Frekari upplýsingar um hvenær hægt er að senda inn umsóknir verða settar inn þegar nær dregur og auglýst sérstaklega.
- Vor 2027: Tímabil 5 . janúar – 9. júní, að undanskildum páskum. Opnað fyrir bókanir 2. nóvember 2026 kl. 11.00 Í gildi reglan „fyrst koma fyrst fá“.
- Haust 2027: Tímabil 20. ágúst 2027 til 3. janúar 2028. Opnað fyrir bókanir 1. júní 2027 kl. 11.00. Í gildi reglan „fyrst koma fyrst fá“.
- Vor og sumar : Tímabil 5. janúar 2027 til 20. ágúst 2027 Opnað fyrir bókanir – kl. 11:00 2. nóvember 2026 Í gildi reglan „fyrst koma fyrst fá“.
- Haust: Tímabil 20. ágúst 2027 til 3. janúar 2028 Opnað fyrir bókanir – kl. 11:00 1. júní 2027 Í gildi reglan „fyrst koma fyrst fá“.
- Vetrartímabil 11. október 2027 til páska 2028. Opnað fyrir bókanir 10. febrúar 2027 Í gildi reglan “fyrst koma fyrst fá”
- Sumartímabil 2027 er frá (páskum) til 10. október 2027. Opnað fyrir bókanir 1. október 2026 kl. 9.00
Orlofshús innanlands
Flestar breytingar og afbókanir getur leigutaki sjálfur gert inni á orlofsíðunni. Sé þörf á aðstoð er hægt að senda tölvupóst á mottakan@fagfelogin.is með beiðni um breytingu eða afbókun. Leigjandi getur afbókað hús innanlands allt að þremur vikum fyrir dvöl gegn fullri endurgreiðslu að frádregnu bókunargjaldi sem er kr. 5000.
Orlofshús erlendis
Leigjandi getur afbókað hús allt að þremur vikum fyrir dvöl gegn fullri endurgreiðslu að frádregnu bókunargjaldi sem er kr. 5000. Endurgreitt er inná það kort sem leigjandi greiddi með.
Eigi afbókun sér stað með styttri fyrirvara er leiga endurgreidd gegn því að orlofseign leigist aftur. Hafið samband við móttöku vegna bókana orlofshúsa í útlöndum.
Afbókun vegna veðurs eða ófærðar
Forsenda þess að fá endurgreitt vegna veðurs er að Veðurstofan hafi gefið út viðvörun eða vegir lokaðir vegna ófærðar, þá er endurgreitt að fullu.
Afbókun vegna veikinda
Endurgreitt er að fullu að frádregnu upphafsgjaldi. Félaginu er heimilt að fara fram á að leigutaki framvísi læknisvottorði. Endurgreitt er inná það kort sem leigjandi greiddi með.
Leiga er aldrei endurgreidd ef tilkynning berst eftir að leigutími hefst.
Almennar leigureglur
Leigjandi skuldbindur sig til að bæta tjón sem kann að verða af hans völdum. Þetta á þó ekki við um minniháttar óhöpp eins og ef leirtau brotnar.
Leigjandi skal ganga vel um eignina, búnað þess og umhverfi. Að lokinni dvöl skal leigjandi sjá um að hver hlutur sé á sínum stað og ræsta húsið vel við brottför og skila því hreinu fyrir næsta leigjanda.
Ef reikningur er ekki greiddur eða um endurtekið brot er að ræða getur það varðað allt að þriggja ára útilokun frá leigu á orlofseignum.
Ef gæludýr eru höfð með þar sem það er ekki leyfilegt er lokað fyrir leigur á viðkomandi í eitt ár og allt að þremur árum við endurtekin brot.
Hvers konar námskeiðshald, kynningar eða annað sem getur talist til atvinnustarfsemi er með öllu óheimilt í orlofshúsum eða íbúðum félagsins.
Þrif eru EKKI innifalin í leigu á sumarhúsum Matvís, hvorki helgar- eða vikuleigu. Á það líka við um hlífðardýnur og sængurfatnað í sumarhúsum. Leigjanda ber að hafa viðeigndi rúmfatnað, lök, sængurver og koddaver meðferðis í sumarhúsið. Að öðrum kosti verður rukkað fyrir þríf á sængurfatnaði.
Þrif eru innifalin í leiguverði á orlofsíbúðum í Reykjavík og Akureyri. Þar fylgir einnig lín með og ber leigjanda að nota það.
Matvís áskilur sér rétt til að innheimta sérstaklega 30.000.- fyrir vanrækslu á þrifum í orlofshúsum og íbúðum.
Félgsmönnum ber að taka tillit til nágranna í orlofseignum Matvís. Lágmarka hávaða í og við eignirnar, hvort sem er sumarhús/íbúðir eða tjaldsvæði. Gæta að umferð um svæðin og virða eðlilega hvíldartíma.
Höfum hugfast að orlofshúsin eru eign félagsmanna, byggð upp og viðhaldið með ykkar framlagi. Göngum því vel um eignirnar og alla muni sem þeim fylgja. Umgengni lýsir innri manni.