
Nú er árið að verða hálfnað og einn af hápunktum þess í uppsiglingu: Kvenréttindadagurinn 19. júní! Framkvæmdastjórn Kvennaárs hefur hlustað á raddir kvenna og kvára sem kalla eftir fjöri og stuði — vettvangi til að koma saman í öruggara rými og berjast saman með gleðina að vopni. Því bjóðum við til KVENNAVÖKU – stórtónleika í Hljómskálagarðinum 19. júní, kl. 19:00-21:00.
Kvennakraftur á sviði
Dagskráin er ekki af verri endanum. Á meðal þeirra sem koma fram eru Reykjavíkurdætur, Countess Malaise, Mammaðín og Heimilistónar. Dagskránni lýkur svo á sannkölluðum breddusöng, þar sem konur og kvár kyrja kraftballöður og diskóslagara við forsöng Guðrúnar Árnýjar. Kynnar verða Sindri “Sparkle” og Sandra Barilli.
Framkvæmdastjórn Kvennaárs