
Um helgina verður keppt um nafnbótina Kokkur ársins og Grænmetiskokkur ársins. Það er Klúbbur matreiðslumanna sem stendur fyrir keppninni en hún fer að venju fram í IKEA. Starfsfólk IKEA hefur sett upp fimm keppniseldhús þar sem gengið er út úr versluninni inn á sjálfsafgreiðslulagerinn.
Forkeppni fór fram í gær, fimmtudaginn 27. mars.
Krafan í forkeppninni var að keppandi notaði þorskhnakka, svínasíðu, jarðskokka og blöðrukál. Fyrstu skil voru kl. 13.15 og síðustu kl. 15:15.
Keppendur voru:
- Wiktor Pálsson – Lola
- Ísak Aron Jóhannsson – Múlakaffi
- Gunnar Georg Gray – Brut
- Gabríel Kristinn Bjarnason – Expert
- Hugi Rafn Stefánsson – Fröken Reykjavík
- Kristín Birta Ólafsdóttir – Grand hótel
- Bjarni Ingi Sigurgíslason – Veislulist
- Jafet Bergmann Viðarsson – Torfhús
Þeir sem eru feitletraðir komust áfram og keppa á laugardaginn.
Í dag, föstudag, fer fram keppnin um Grænmetiskokk ársins. Þar eru fjórir keppendur skráðir til leiks:
- Monica Daniela Panait, Hótel Geysir
- Dominika Kulińska, mötuneyti sveitarfélagsins Stykkishólms
- Andrés Björgvinsson, Lux veitingar
- Kamil Ostrowski, Brak
Keppendur hafa 5 klukkutíma til undirbúnings og verða ræstir með 5 mínútna millibili.
Úrslit í báðum keppnum verða tilkynnt í Bjórgarðinum eftir kl. 18:00 á laugardaginn.
Athugið að meðfylgjandi mynd er frá keppninni 2023.