Gullverðlaun í Danmörku

Ísland hreppti gullverðlaun í framreiðslu í Norrænu nemakeppninni sem fram fór í Silkeborg í Danmörku í vikunni. Steinn Óskar Sigurðsson, leiðtogi matvælagreina hjá Iðunni fræðslusetri ritaði eftirfarandi pistil þegar úrslitin lágu fyrir.

Núna er nýlokið Norrænu nemakeppninni í matreiðslu og framreiðslu og stóðu íslensku keppendurnir sig virkilega vel. Það voru íslensku keppendurnir í framreiðslu sem sigruðu keppnina í ár og halda heim á leið með gullið í farteskinu. Keppnin fór fram í verkmenntaskólanum College 360 í Silkiborg í Danmörku.

Keppendurnir í ár eru framreiðslunemarnir Silvia Louise Einarsdóttir frá Veitingastaðnum Moss í Bláa Lóninu og Tristan Tómasson Manoury frá Íslenska Matarkjallaranum og matreiðslunemarnir Sindri Hrafn Rúnarsson frá veitingastaðnum Monkeys og Marlís Jóna Þórunn Karlsdóttir frá Grand Hótel.

Þjálfari framreiðslunemanna er Finnur Gauti Vilhelmsson og þjálfari matreiðslunemanna er Jakob Zarioh Sifjarson Baldvinsson.

Úrslitin uðu eftirfarandi.

Framreiðsla:
Gull – Ísland
Silfur – Danmörk
Brons – Noregur

Matreiðsla:
Gull – Noregur
Silfur – Danmörk
Brons – Svíþjóð

Þema keppninnar í ár var „sjálfbærni“ og var það lið Svíþjóðar sem hlaut verðlaunin sem sjálfbærnilið keppninnar.

Steinn Óskar Sigurðsson

image00005

Image 3 of 12