
Gabíel Kristinn Bjarnason hafði um helgina betur í keppni um nafnbótina Kokkur ársins 2025. Keppnina fór fram í IKEA en henni lauk um klukkan 16:30 á laugardaginn. Að lokinni keppni fór verðlaunaafhending fram í Bjórgarðinum, þar sem úrslitin voru kunngjörð.
1. sæti – Gabríel Kristinn Bjarnason
2. sæti – Wiktor Pálsson
3. sæti – Ísak Aron Jóhannsson
Gabríel Kristinn mun taka þátt fyrir Íslands hönd í keppninni Nordic Chef á næsta ári en þar leiða saman hesta sína hæfileikaríkustu kokkar Norðurlandanna.
Keppnin Kokkur ársins var fyrst haldin 1994.