Allir okkar keppendur í verðlaunasætum

Í vikunni lauk undankeppni Evrópu fyrir Global Chefs Challenge sem haldin verður í Wales 2026. Frá þessu segir í tilkynningu frá Klúbbi matreiðslumeistara. Keppnin stóð yfir í þrjá daga og keppt var í fjórum flokkum þar sem Ísland tók þátt í þremur þeirra; 

  • Vegan Global Chef Challenge þar sem fulltrúi okkar var Bjarki Snær Þorsteinsson, Turninn 19. hæð, naut aðstoðar Maríu Ósk Steinsdóttir, Lux veitingar, 
  • Junior Global Chef Challenge en þar keppti Jafet Bergman Viðarson, Torfhús Retreat, 
  • Global Chef Challenge keppti Hinrik Örn Lárusson, Lux veitingar, með dyggri aðstoð Andrésar Björgvinssonar, Lux veitingar. 

Hinrik bestur í Norður Evrópu 
Besta árangri íslands náðu Hinrik Örn og Andrés en þeir gerðu sér lítið fyrir og unnu keppnina fyrir norður Evrópu og þar með rétti til að keppa í Wales 16. til 19. maí 2026.  

Þeir félagar höfðu 2 tíma til að elda tvo rétti þar sem skylduhráefni voru Sterling lúða, kálfahryggjarvöðvi og kálfalifur.  

Alls voru 19 keppendur sem tóku þátt og hlutu 6 þeirra gull viðurkenningu fyrir rétti sína.  

Í öðru sæti var Tommy Jespersen frá Danmörku  og í þriðja sæti var frá Emil Persson frá Svíþjóð. 

Forréttur: 
Bökuð Sterling lúða með humarfarsi & fennel fræjum 
Freyðandi lúðusósa með kampavíni og ristuðu næringargeri 
Grænmetispressa með heslihnetum og möndlukremi 
Blómkál í smjörsósu og ristað blómkálsmauk 
Sýrður rjómi með eplum, piparrót og dillsósu  

Aðalréttur:  
Pönnusteiktur kálfahryggvöðvi með grill gljáa 
Ofnbakaðir sveppir & sveppafylling ásamt kálfalifrarfroðu 
Gullauga kartöflur & Feykir 
Sýrður laukur, laukflan & brokkolí ragú með saltaðri sítrónu 
Kálfasoðsósa 

Bjarki og Jafet báðir í þriðja sæti  
Bjarki og Jafet sem eru í Íslenska Kokkalandsliðinu kláraðu báðir í 3. sæti í sínum flokkum. 
Vegan keppnin er tiltölulega ný en þetta var í annað skiptið sem hún var haldin. 
Alls voru 12 keppendur sem tóku þátt að þessu sinni, en enginn skylduhráefni voru í flokknum.
Sigurvegari í norður Evrópu, var Daninn Bjarke Jeppesen og Valerija Cudova frá Lettland lenti í öðru sæti. 

Í Junior keppninni voru 14 keppendur en keppendur í flokknum voru ekki með aðstoðarmann og höfðu eina klukkustund til að útbúa einn rétt úr kálfahryggjarvöðva og kálfalifur.  
Þar sigraði Trym Karlsen frá Noregi en Svíinn Benjamin Hellström lenti í öðru sæti.   

Réttarlýsing Bjarka:

Forréttur: 
Ravioli með tófu- og skessujurtar fyllingu 
Tómatseyði 
Þurrkaðir tómatar 
Valhnetur 
Stökk salvía 

Aðalréttur: 
Jarðskokkapressa  
Kartafla með linsubaunafyllingu 
Vatnsdeigsbakstur með svepparagú  
Gljáð gulrót 
Ragú með sojabaunum, kantarellum og kínóa 
Pólentufroða 
Sveppa- og laukgljái 

Réttarlýsing Jafets:

Steiktur kálfa hryggvöðvi.   
Pönnusteiktir sveppir & sveppafylling, kálfalifrarfroða
Kartöflumauk
Gljáðar gulrætur 
Steikt rænkágl
Sýrður perlulaukur
Kálfasoðsósa