
Iðan fræðslusetur hefur auglýst tvö spennandi störf laus umsóknar. Annars vegar er um að ræða starf markaðs- og sölustjóra Iðunnar. Markaðs- og sölustjóri leiðir markaðs- og sölustarf Iðunnar, ber ábyrgð á vef Iðunnar, daglegum markaðsverkefnum og á í miklum samskiptum við starfsfólk Iðunnar þvert á félagið. Markaðs- og sölustjóri heyrir undir framkvæmdastjóra Iðunnar og situr í framkvæmdastjórn félagsins.
Hins vegar leitar Iðan að nýjum fræðslufulltrúa. Í því starfi felst utanumhald með stað- og vefnámskeiðum í iðngreinum, samskipti við þátttakendur og leiðbeinendur, umsjón með tæknimálum tengdum námskeiðahaldi og umsjón með kennsluatriði.
Iðan er leiðandi fræðslusetur í iðnaði og þjónustar bílgreinar, bygginga- og mannvirkjagreinar, málm- og véltæknigreinar, matvæla- og veitingagreinar og prent- og miðlunargreinar. Námsframboðið er fjölbreytt og í stöðugri þróun en markmið Iðunnar er að stuðla að framúrskarandi færni, framþróun og nýsköpun meðal starfsfólks í iðngreinum.