
Í vikunni lauk undankeppni Evrópu fyrir Global Chefs Challenge sem haldin verður í Wales 2026. Frá þessu segir í tilkynningu frá Klúbbi matreiðslumeistara. Keppnin stóð yfir í þrjá daga og keppt var í fjórum flokkum þar sem Ísland tók þátt í þremur þeirra;
- Vegan Global Chef Challenge þar sem fulltrúi okkar var Bjarki Snær Þorsteinsson, Turninn 19. hæð, naut aðstoðar Maríu Ósk Steinsdóttir, Lux veitingar,
- Junior Global Chef Challenge en þar keppti Jafet Bergman Viðarson, Torfhús Retreat,
- Global Chef Challenge keppti Hinrik Örn Lárusson, Lux veitingar, með dyggri aðstoð Andrésar Björgvinssonar, Lux veitingar.
Hinrik bestur í Norður Evrópu
Besta árangri íslands náðu Hinrik Örn og Andrés en þeir gerðu sér lítið fyrir og unnu keppnina fyrir norður Evrópu og þar með rétti til að keppa í Wales 16. til 19. maí 2026.
Þeir félagar höfðu 2 tíma til að elda tvo rétti þar sem skylduhráefni voru Sterling lúða, kálfahryggjarvöðvi og kálfalifur.
Alls voru 19 keppendur sem tóku þátt og hlutu 6 þeirra gull viðurkenningu fyrir rétti sína.
Í öðru sæti var Tommy Jespersen frá Danmörku og í þriðja sæti var frá Emil Persson frá Svíþjóð.
Forréttur:
Bökuð Sterling lúða með humarfarsi & fennel fræjum
Freyðandi lúðusósa með kampavíni og ristuðu næringargeri
Grænmetispressa með heslihnetum og möndlukremi
Blómkál í smjörsósu og ristað blómkálsmauk
Sýrður rjómi með eplum, piparrót og dillsósu
Aðalréttur:
Pönnusteiktur kálfahryggvöðvi með grill gljáa
Ofnbakaðir sveppir & sveppafylling ásamt kálfalifrarfroðu
Gullauga kartöflur & Feykir
Sýrður laukur, laukflan & brokkolí ragú með saltaðri sítrónu
Kálfasoðsósa
Bjarki og Jafet báðir í þriðja sæti
Bjarki og Jafet sem eru í Íslenska Kokkalandsliðinu kláraðu báðir í 3. sæti í sínum flokkum.
Vegan keppnin er tiltölulega ný en þetta var í annað skiptið sem hún var haldin.
Alls voru 12 keppendur sem tóku þátt að þessu sinni, en enginn skylduhráefni voru í flokknum.
Sigurvegari í norður Evrópu, var Daninn Bjarke Jeppesen og Valerija Cudova frá Lettland lenti í öðru sæti.
Í Junior keppninni voru 14 keppendur en keppendur í flokknum voru ekki með aðstoðarmann og höfðu eina klukkustund til að útbúa einn rétt úr kálfahryggjarvöðva og kálfalifur.
Þar sigraði Trym Karlsen frá Noregi en Svíinn Benjamin Hellström lenti í öðru sæti.
Réttarlýsing Bjarka:
Forréttur:
Ravioli með tófu- og skessujurtar fyllingu
Tómatseyði
Þurrkaðir tómatar
Valhnetur
Stökk salvía
Aðalréttur:
Jarðskokkapressa
Kartafla með linsubaunafyllingu
Vatnsdeigsbakstur með svepparagú
Gljáð gulrót
Ragú með sojabaunum, kantarellum og kínóa
Pólentufroða
Sveppa- og laukgljái
Réttarlýsing Jafets:
Steiktur kálfa hryggvöðvi.
Pönnusteiktir sveppir & sveppafylling, kálfalifrarfroða
Kartöflumauk
Gljáðar gulrætur
Steikt rænkágl
Sýrður perlulaukur
Kálfasoðsósa